5. Flokkur Víkings

24.01.2012 12:57:14 / Reynir

Æfing fellur niður!

Æfingin í dag (24. jan) fellur niður þar sem völlurinn er á kafi í snjó

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 12:18:01 / Reynir

Laugardagur 21 jan.

Á laugardag 21 jan. eiga allir sem ekki hafa verið boðaðir á innanhús mótið að mæta á æfingu í Réttó kl 12:30.

Því miður var aðeins í boði að koma með eitt lið á innanhúsmótið.

Þeir sem hafa verið boðaðir á mótið (innanhús) mæta í Víkina kl 11:00 og verður farið þaðan í Hveragerði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2012 13:02:21 / Reynir

Engin æfing í dag!

Engin æfing í dag þriðjudag 10 jan. vegna veðurs

Næsta æfing er á fimmtudag 12 jan.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2012 15:27:32 / Reynir

Æfingar byrjaðar!

Sælir.

Næsta æfing er núna á þriðjudag 10 jan. kl 16:45

Þá byrja æfingar á sama tíma og fyrir jól.

Kv. þjálfarar



» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2011 20:09:17 / Foreldraráð

Jólafjör í Víkinni eftir æfingu á fimmtudag 15.des

Sæl öll kæru foreldrar og forráðamenn,


Eftir æfinguna á fimmtudag klukkan 18 ætlum við að hittast í stóra salnum í Víkinni eiga góða stund saman svona rétt 

fyrir jólin og fá okkur heitt kakó og eitthvað með því, jólafjörinu lýkur í kringum 19.


Vonumst tiil að sjá sem flesta drengi 

Bestu jólakveðjur, 

Foreldraráð

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.11.2011 10:47:47 / Reynir

Æfingaleikur við HK í Egilshöll

Við spilum æfingaleik við HK á laugardaginn 19.11 í Egilsöll.

Þar af leiðandi er ekki æfing í Réttó.

A og C lið spila kl. 14:30 Mæting kl 14:00
B og D lið spila kl. 15:15 Mæting kl 14:30

A - lið
Ágúst, Bjarki B, Bjarki S, Emil, Gunnar, Kolbeinn, Sverrir, Viktor.

B - lið
Bjarki K, Hjalti, Ísak, Kristján, Magnús, Orri, Sindri S, Sverrir Hreggviðs., Unnar E, Þórir, Magnús H,

C - lið
Bjarki I, Daniel Eggert, Eysteinn, Jakob, Natan, Nökkvi, Ólafur A, Sindri B, Tristan E, Þorgrímur Goði, Þorlákur, Ástþór, Jökull, Örn

D - lið
Flóki, Gauti, Arnar S, Árni G, Benedikt, Daniel L, Davíð, Einir, Friðrik, Geir, Grétar, Jóhannes, Konráð, Máni B, Ólafur H, Tristan G, Unnar H, Úlfur, Victor M, Ingvar

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2011 17:29:10 / Foreldraráð

Fjáröflun

Minnum foreldra og forráðamenn á að niðurstöður fjáröflunar skal skila í lok sunnudags.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2011 17:27:10 / Foreldraráð

Þorlákshöfn

Þorlákshafnarferð:

 

Næsta laugardag 12.11. fer 5. flokkur karla í knattspyrnu til Þorlákshafnar og verður gist þar eina nótt. Mæting er í Víkina kl.12.00 á laugardaginn og treyst á ykkur foreldra til að aka leikmönnum austur og sameina ferðir. Síðan þarf að sækja drengina aftur á sunnudaginn í grunnskólann í Þorlákshöfn kl.13.00. Þessi ferð er hugsuð sem skemmti og æfingarferð en líka til að hrista hópinn saman.

 

Kostnaðurinn er 2.800 krónur og er það fyrir gistingu, mat og íþróttaaðstöðu en drengirnir þurfa ekki meiri pening. Þeir sem ætla í ferðina þurfa að borga í síðasta lagi á fimmtudaginn 10.11. inn á reikning númer 0323-13-168886 kt:700693-2529 og setja inn skýringu; Þorlákshöfn og nafn drengs.  Við þjálfararnir förum með og Þórhallur Hinriksson verður fararstjóri. Við fórum svona ferð í fyrra á sama stað og var það virkilega gaman og vel heppnað, vonum að þátttakan verði líka góð í ár en það er ekki skyldumæting. Drengirnir þurfa að taka með sér föt og búnað fyrir eina nótt, einnig íþróttafatnað og skó fyrir inniæfingu og sunddót. Æfingin á laugardaginn í Réttó fellur niður. Með kveðju, BB        

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2011 14:07:13 / Reynir

Frí laugardaginn 22. október

Æfingin á laugardaginn 22 október fellur niður vegna vertrarfría í skólunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2011 19:45:24 / Reynir

Laugardag

Æfingin á laugardaginn 1 október fellur niður.

Þá er uppskeruhátíð yngri flokka í knattspyrnu. Hún fer fram í Víkinni laugardaginn 1. október kl. 12:00.
Veitt verða verðlaun ásamt því að fara yfir starf tímabilsins.
Við hvetjum alla iðkendur og forráðamenn þeirra að mæta og taka þátt í hátíðarhöldunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.09.2011 13:02:48 / Reynir

Fimmtudag

Sælir.

Á æfingu í dag 15.09. er mæting hjá hliðinu inn á æfingasvæðið. Það er leikur á sama tíma og æfingin og meigum við því ekki halda æfinguna.
Við ætlum því að hópa saman og hvetja okkar menn áfram.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2011 23:31:34 / Foreldraráð

Lokahóf 5. flokks 2011

Nú er komið að lokahófinu:

Haldið í Víkinni n.k mánudag 5. september.

Mæting kl. 18.00

Dagskrá:

Bjössi skiptir í lið en tekin verður stuttur fótboltaleikur blönduð lið; börn og foreldrar.

Því næst förum við öll inn í Víkina og sjáum myndband um N1 mótið sem Gunnar pabbi Hákons er höfundur að.

Svo er auðvitað pizza og gos handa öllum.

Við hvetjum ykkur foreldra að mæta með börnunum ykkar og eiga notarlega stund.

Við hjá foreldraráði þökkum ykkur og þjálfurum fyrir samstarfið á árinu,

Þetta var frábær hópur stráka, foreldra og þjálfara.

Foreldraráð 5. flokks

Andri

Þórhildur

Ósk

Stígur

Helgi

Þorgrímur

Katrín og Kjartan


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2011 14:53:00 / Foreldraráð

Víkingur - ÍBV Mánudagur 29. ágúst kl. 18

Kæru Víkingar, Enn og aftur biðlum við til ykkar að koma og standa þétt með okkur í leiknum gegn ÍBV í dag í Víkinni klukkan 18.00. Það var mikill fjöldi Víkinga sem lagði leið sína í Grindavík síðasta mánudag og mun fleiri Víkingar í stúkunni en heimamenn. Stuðningurinn og hollustan við félagið hefur verið frábær í síðustu leikjum og hjálpað okkur mikið í þessari miklu baráttu sem við stöndum í. Á þessari hollustu byggist félagið okkar. Í þessari baráttu þarf Víkingur á öllu sínu fólki að halda. Við höfum mikla og fulla trú á verkefnið, sömu skilaboð eru skýr frá þjálfurunum og leikmönnum. Það er mikill baráttuandi til staðar. Við munum berjast til síðasta blóðdropa. Víkingar fjölmennum á leikinn við ÍBV í dag – hvetjum liðið til sigurs og sýnum styrk Víkings. Áfram Víkingur

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2011 16:43:42 / Reynir

Framundan

Breyttir æfingatímar

Þriðjudagar kl. 16:45
Fimmtudagar kl. 16:45
Laugardagar kl. 11:30 inni


5. sept. verður "slúttið".
Hefst kl. 18:00.
-Fótbolti (foreldrar og gamla fólkið VS strákarnir)
-Pizza og gleði

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Klukkan
Leitarbox

Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 82816
Könnun
Hverjir eru bestir?

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 578 dögum
N1 mótið á Akureyri!